Endurskoðendaráð mun framkvæma gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja á árinu 2025 í samræmi við ákvæði laga nr. 94/2019, um endurskoðendur og endurskoðun og reglur nr. 1091/2020, um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda. Gert er ráð fyrir að gæðaeftirlitið fari fram í september, október og nóvember 2025.
Endurskoðendaráð leitar nú að gæðaeftirlitsmönnum til að annast framkvæmd gæðaeftirlitsins. Í samræmi við 32. gr. laga nr. 94/2019 skulu gæðaeftirlitsmenn hafa viðeigandi menntun og reynslu í endurskoðun og reikningsskilum. Starfandi endurskoðendur og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja geta verið gæðaeftirlitsmenn.
Endurskoðendaráð mun halda námskeið fyrir þá sem verða valdir til þátttöku í gæðaeftirlitinu. Áætlað er að námskeiðið verði haldið í lok sumars.
Áhugasamir sendi inn umsókn á netfangið [email protected] eigi síðar en föstudaginn 9. maí 2025. Í umsókn skal gera grein fyrir menntun og starfsreynslu af endurskoðun og tengdum störfum. Jafnframt er óskað upplýsinga um þjálfun í gæðaeftirliti og reynslu af framkvæmd gæðaeftirlits.