4. maí, 2026

Endurskoðendaráð auglýsir eftir gæðaeftirlitsmönnum fyrir gæðaeftirlit 2026

Endurskoðendaráð mun framkvæma gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja á árinu 2026 í samræmi við ákvæði laga nr. 94/2019, um endurskoðendur og endurskoðun og reglur nr. 1370/2024, um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda. Gert er ráð fyrir að gæðaeftirlitið fari fram í september, október og nóvember 2026.

Endurskoðendaráð leitar nú að gæðaeftirlitsmönnum til að annast framkvæmd gæðaeftirlitsins. Í samræmi við 32. gr. laga nr. 94/2019 skulu gæðaeftirlitsmenn hafa viðeigandi menntun og reynslu í endurskoðun og reikningsskilum. Starfandi endurskoðendur og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja geta verið gæðaeftirlitsmenn.

Endurskoðendaráð mun halda námskeið fyrir þá sem verða valdir til þátttöku í gæðaeftirlitinu. Áætlað er að námskeiðið verði haldið í lok sumars.

Áhugasamir sendi inn umsókn á netfangið [email protected] eigi síðar en miðvikudaginn 20. maí 2026. Í umsókn skal gera grein fyrir menntun og starfsreynslu af endurskoðun og tengdum störfum. Jafnframt er óskað upplýsinga um þjálfun í gæðaeftirliti og reynslu af framkvæmd gæðaeftirlits.