6. maí, 2024

Endurskoðendaráð leitar eftir gæðaeftirlitsmönnum fyrir gæðaeftirlit 2024

Endurskoðendaráð mun framkvæma gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja á árinu 2024 í samræmi við ákvæði laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun og reglur nr. 1091/2020 um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda. Gert er ráð fyrir að gæðaeftirlitið fari fram í september, október og nóvember 2024.

Endurskoðendaráð leitar nú eftir gæðaeftirlitsmönnum. Í samræmi við 32. gr. laga nr. 94/2019 skulu gæðaeftirlitsmenn hafa viðeigandi menntun og reynslu í endurskoðun og reikningsskilum. Starfandi endurskoðendur og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja geta verið gæðaeftirlitsmenn.

Endurskoðendaráð mun halda námskeið fyrir þá sem valdir verða til þátttöku í gæðaeftirlitinu. Áætlað er að námskeiðið verði haldið í lok sumars.

Áhugasamir sendi inn umsókn á netfangið [email protected] eigi síðar en 3. júní 2024. Í umsókn skal gera grein fyrir menntun og starfsreynslu af endurskoðun og tengdum störfum. Þá er óskað upplýsinga um þjálfun í gæðaeftirliti og reynslu af framkvæmd gæðaeftirlits.