Endurskoðandi getur óskað eftir því við endurskoðendaráð að leggja inn réttindi sín og falla þá niður réttindi og skyldur hans sem endurskoðanda nema annað leiði af lögum.
Ef mál endurskoðanda, sem óskar innlagnar réttinda, eru til meðferðar hjá endurskoðendaráði er innlögn réttinda ekki heimil nema málið sé látið niður falla samkvæmt lögum um endurskoðendur.
Óski endurskoðandi eftir því að fá réttindi sín sem endurskoðandi útgefin að nýju skal hann senda endurskoðendaráði umsókn þar um. Eftirtalin gögn skulu fylgja umsókn:
Endurskoðendaráð hefur heimild til að fella niður réttindi endurskoðenda eða endurskoðunarfyrirtækja viðkomandi fullnægir ekki skilyrðum til löggildingar/skráningar. Þá getur endurskoðendaráð fellt niður réttindi endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis ef viðkomandi brýtur gegn lögum um endurskoðendur og endurskoðun eða vanrækir alvarlega skyldur sínar að öðru leyti að mati endurskoðendaráðs.