Fréttir
Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa
Með
vísan til laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun, er fyrirhugað að
halda próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa í október 2024 sem hér
segir:
Próf í endurskoðun og reikningsskilum:
Fyrri hluti mánudaginn 7. október.
Seinni hluti fimmtudaginn 10. október.
Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 16.
Próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum:
Mánudaginn 14. október.
Prófið hefst kl. 9 og stendur til kl. 14.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 595/2020 um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa.
Próftökugjald er kr. 435.000.- fyrir próf í endurskoðun og reikningsskilum og kr. 145.000.- fyrir próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir hvort próf sem er 20% af fjárhæð prófgjalds.
Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir fimmtudaginn 8. ágúst nk. til prófnefndar. Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Jóni Arnari Baldurs, Urðarbraut 9, 200 Kópavogi eða í tölvupósti á jon.a.baldurs@gmail.com.
Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 5. og 7. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 94/2019. Próftakar fá þá senda reikninga fyrir prófgjaldinu og skal allt prófgjaldið vera greitt fyrir 15. september nk.
Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágúst nk.
Reykjavík, 6. júlí 2024.
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda
Endurskoðendaráð leitar eftir gæðaeftirlitsmönnum fyrir gæðaeftirlit 2024
Endurskoðendaráð mun framkvæma gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja á árinu 2024 í samræmi við ákvæði laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun og reglur nr. 1091/2020 um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda. Gert er ráð fyrir að gæðaeftirlitið fari fram í september, október og nóvember 2024.
Endurskoðendaráð leitar nú eftir gæðaeftirlitsmönnum. Í samræmi við 32. gr. laga nr. 94/2019 skulu gæðaeftirlitsmenn hafa viðeigandi menntun og reynslu í endurskoðun og reikningsskilum. Starfandi endurskoðendur og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja geta verið gæðaeftirlitsmenn.
Endurskoðendaráð mun halda námskeið fyrir þá sem valdir verða til þátttöku í gæðaeftirlitinu. Áætlað er að námskeiðið verði haldið í lok sumars.
Áhugasamir sendi inn umsókn á netfangið endurskodendarad@endurskodendarad.is eigi síðar en 3. júní 2024. Í umsókn skal gera grein fyrir menntun og starfsreynslu af endurskoðun og tengdum störfum. Þá er óskað upplýsinga um þjálfun í gæðaeftirliti og reynslu af framkvæmd gæðaeftirlits.
Starfsábyrgðartrygging endurskoðenda
Samkvæmt 3. mgr. 8. gr. laga nr. 94/2019 skulu endurskoðendur fyrir 15. janúar ár hvert senda endurskoðendaráði staðfestingu þess að þeir hafi gilda starfsábyrgðartryggingu. Endurskoðendaráð hvetur endurskoðendur til að senda endurskoðendaráði staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu sinni innan tilskilinna tímamarka á netfangið endurskodendarad@endurskodendarad.is
Ellefu nýir löggiltir endurskoðendur
Ellefu einstaklingar stóðust prófin sem prófnefnd endurskoðenda hélt í október síðastliðnum og fengu þeir löggildingarskírteini sín afhent þann 7. desember 2023.
Lesa meira
- Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa
- Endurskoðendaráð leitar eftir gæðaeftirlitsmönnum fyrir gæðaeftirlit 2023
- Fjórtán nýir löggiltir endurskoðendur
- Starfsábyrgðartrygging endurskoðenda
- Próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa
- Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa
- Endurskoðendaráð leitar eftir gæðaeftirlitsmönnum fyrir gæðaeftirlit 2022
- Staðfesting endurskoðenda á starfsábyrgðartryggingu 2022
- Átta nýir löggiltir endurskoðendur
- Próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa fóru fram í október
- Gæðaeftirlit endurskoðendaráðs hófst í október
- Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa
- Gæðaeftirlit endurskoðendaráðs 2021
- Endurskoðendaráð leitar eftir gæðaeftirlitsmönnum
- Staðfesting endurskoðenda um starfsábyrgðartryggingu
- Sex nýir löggiltir endurskoðendur
- Reglur um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda.
- Reglur um um lágmarksfjárhæð starfsábyrgðartryggingar endurskoðenda og hámark eigin áhættu
- Ný reglugerð um starfsábyrgðartryggingar endurskoðenda
- Próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa